Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1489, 127. löggjafarþing 711. mál: Umhverfisstofnun.
Lög nr. 90 15. maí 2002.
Hlutverk stofnunarinnar er:
Stofnuninni er skipt í fagsvið og starfar forstöðumaður yfir hverju sviði. Forstöðumenn skulu hafa háskólamenntun og sérþekkingu eða starfsreynslu á viðkomandi sviði. Forstjóri ræður forstöðumenn. Einn forstöðumanna gegnir starfi staðgengils forstjóra. Forstjóri ræður jafnframt annað starfsfólk stofnunarinnar.
Ráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum forstjóra, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þingskjal 1489, 127. löggjafarþing 711. mál: Umhverfisstofnun.
Lög nr. 90 15. maí 2002.
Lög um Umhverfisstofnun.
1. gr.
Ríkið starfrækir stofnun sem nefnist Umhverfisstofnun. Stofnunin hefur aðsetur á höfuðborgarsvæðinu en getur rekið hluta af starfsemi sinni annars staðar á landinu.Hlutverk stofnunarinnar er:
- að annast starfsemi sem Hollustuvernd ríkisins er falin samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum, lögum nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum, lögum nr. 67/1985, um veitinga- og gististaði, með síðari breytingum, lögum nr. 74/1984, um tóbaksvarnir, með síðari breytingum, lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, sóttvarnalögum, nr. 19/1997, með síðari breytingum, lögum nr. 17/2000, um framkvæmd samnings um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra, og lögum nr. 75/2000, um brunavarnir,
- að annast starfsemi sem Náttúruvernd ríkisins er falin samkvæmt lögum nr. 44/1999, um náttúruvernd, með síðari breytingum, lögum nr. 36/1974, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, með síðari breytingum, lögum nr. 61/1992, um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, með síðari breytingum, lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1995, um vernd Breiðafjarðar, með síðari breytingum, lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum, lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, með síðari breytingum, lögum nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, með síðari breytingum, lögum nr. 117/1994, um skipulag ferðamála, með síðari breytingum, og lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, með síðari breytingum,
- að annast starfsemi sem embætti veiðistjóra er falin samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum,
- að annast starfsemi hreindýraráðs samkvæmt lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum,
- að annast starfsemi dýraverndarráðs og framkvæmd laga um dýravernd, nr. 15/1994, með síðari breytingum.
2. gr.
Við stofnunina starfar forstjóri skipaður af umhverfisráðherra til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa háskólamenntun og þekkingu á verksviði stofnunarinnar. Forstjóri fer með stjórn stofnunarinnar, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri hennar.Stofnuninni er skipt í fagsvið og starfar forstöðumaður yfir hverju sviði. Forstöðumenn skulu hafa háskólamenntun og sérþekkingu eða starfsreynslu á viðkomandi sviði. Forstjóri ræður forstöðumenn. Einn forstöðumanna gegnir starfi staðgengils forstjóra. Forstjóri ræður jafnframt annað starfsfólk stofnunarinnar.
Ráðherra setur í reglugerð, að fengnum tillögum forstjóra, nánari ákvæði um skipulag stofnunarinnar.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.4. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:- 20. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, fellur úr gildi.
- 5. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd, fellur úr gildi.
- 1. mgr. 4. gr. og 3. mgr. 14. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, með síðari breytingum, falla úr gildi.
- 2. mgr. 17. gr. laga nr. 15/1994, um dýravernd, með síðari breytingum, orðast svo:
- Starfsmenn stofnana sem sinnt hafa þeim verkefnum sem munu heyra undir Umhverfisstofnun samkvæmt lögum þessum skulu eiga forgangsrétt til starfa þar á fyrsta starfsári stofnunarinnar. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessum tölulið.
- Þegar lög þessi hafa verið samþykkt skal umhverfisráðherra skipa starfshóp sem í eiga sæti auk fulltrúa ráðuneytisins forstjóri Hollustuverndar ríkisins, forstjóri Náttúruverndar ríkisins og veiðistjóri. Starfshópurinn skal undirbúa gildistöku laganna.
- Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. skal forstjóri Umhverfisstofnunar skipaður frá 1. ágúst 2002 og skal hann frá þeim tíma taka þátt í starfshópi skipuðum skv. 2. tölul.
Samþykkt á Alþingi 3. maí 2002.